Hafnargjöld
Hafnir Múlaþings
Gjaldskrá 2025
Borgarfjarðar- Djúpavogs- og Seyðisfjarðarhöfn
Gjaldskrá þessi fyrir Hafnir Múlaþings er sett skv. heimild í 17. grein hafnalaga nr. 61/2003.
Hér er hægt að hlaða niður gjaldskrá á .pdf formi:
Hlaða niður gjaldskrá
Skipagjöld
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttó tonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.
Skoða nánarSkipagjöld
Lestargjöld: Af öllum skipum skal greiða lestargjald, 20,83 kr.
Bryggjugjöld
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi:
- 11,08 kr. á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur bundið.
- Farþegaskip, sem liggja við akkeri, en nota flotbryggju, skulu greiða kr. 5,33 á mælieiningu.
- Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum yfir 20 BT, sem mánaðargjald, 130,83 kr. á mælieiningu, en þó aldrei lægra en 29.719 kr. á mánuði.
- Bátar 10 – 20 BT greiði 17.733 kr. á mánuði.
- Bátar minni en 10 BT greiði þó aldrei lægra en 9.600 kr. á mánuði.
- Bátar minni óskráðir styttri en 6 metrar greiði 6.782 kr. á mánuði. Þá báta skal taka upp yfir tímabilið október til maí.
- Skútur og skemmtibátar sem koma til hafnar daggjald 20 EURO.
- Landstöðugjald fyrir báta við bátahöfn er kr. 3.782 á mánuði.
Heimilt er að leggja á allt að fimmföld bryggjugjöld á skip og báta sem liggja um lengri tíma við bryggju og hafa verið án haffærisskírteinis í a.m.k. 6 mánuði.
Heimilt er að leggja þreföld bryggjugjöld á skip og báta sem óska eftir langtíma viðlegu vegna annarrar starfsemi en útgerðar.
Vörugjöld
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnanna, þó með þeim undantekningum er síðar getur. Farmflytjandi skal skila farmskrá og öðrum nauðsynlegum gögnum til hafnanna, vegna álagningar vörugjalda.
Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.
Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald. Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.
Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:
- Umbúðir sem endursendar eru.
- Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
- Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
- Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.
Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóra eða afgreiðslumanni skips skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:
| 1 | Fyrir hvert tonn fljótandi efni mælist í rúmmetrum: Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu. | kr. 450 |
| 2 | Fyrir hvert tonn: Lýsi, fiskimjöl og melta. | kr. 629 |
| 3 | Fyrir hvert tonn: Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir. | kr. 820 |
| 4 | Fyrir hvert tonn. Aðrar vörur sem ekki eru tilgreindar í 1. - 3. fl. | kr. 1.771 |
Catch Fee and Aquaculture Fee
- The catch fee is 1.50% of the total catch value. This applies to marine catch landed or transferred to a vessel within the harbor area for processing or export. The fee is calculated based on the total value of the catch.
- The aquaculture fee is 1.50% of the total value of farmed fish, including farmed juveniles, that have been raised in sea pens or are intended for such farming, and which are transshipped, loaded, or unloaded in harbors. The fee is calculated based on the total value of the catch.
- The fee for frozen catch from freezer trawlers is calculated based on half of the total value.
- The fee for salted fish is calculated based on double the weight, and the fee for containerized fish is calculated based on the estimated total value.
- The seller of the catch must submit a report to the harbor master on the sold catch as soon as the sale has taken place, e.g., a copy of the catch report to the Directorate of Fisheries. The catch fee and aquaculture fee become due upon landing of the catch.
- The seller is responsible for the payment of the catch fee and aquaculture fee.
- When selling catch to related parties according to paragraph 3, Article 9 of Act No. 13/1998 on the Price Settlement Office and the Fishermen and Vessel Owners’ Arbitration Committee, the minimum price shall be based on the settlement price determined by the Price Settlement Office.
| Gjald 1,50% af heildar aflaverðmæti. |
| Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. |
| Eldisgjaldi' er 1,50% af heildar aflaverðmæti af eldisfiski, þ.m.t. eldisseiðum, sem alinn hefur verið í sjókvíum eða ætlaður er til slíks eldis, sem umskipað er, lestaður er eða losaður í höfnum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. |
| Gjald af frystum afla frystitogara reiknast af helmingi heildarverðmætis. |
| Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið og eldisgjaldið falla í gjalddaga um leið og afla er landað. |
| Seljanda ber að standa skil á greiðslu aflagjalds og eldisgjalds. |
| Við sölu afla til skyldra aðila skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna skal að lágmarki miðað við skiptaverð verðlagsstofu skiptaverðs. |
| 1 | Festargjöld fyrir hverja afgreiðslu | kr. 22.336 |
| 2 | Yfirvinna | kr. 38.368 |
| 3 | Sé fleiri en einn maður notaður við afgreiðslu er gjald fyrir hvern aukamann | kr. 22.336 |
| 4 | Yfirvinna | kr. 38.368 |
Ekki er hafnsöguskylda í Höfnum Múlaþings en ef óskað er eftir slíkri þjónustu er greitt samkvæmt gjaldskrá.
| 1 | Fast gjald pr. ferð | kr. 6.879 |
| 2 | Stærðargjald á mælieiningu | kr. 10,20 |
| 3 | Flutningur á hafnsögumanni | kr. 54.383 |
| 4 | Ef óskað er eftir bát (Vinnubát )til aðstoðar við komu eða brottför út af hafnarsvæðinu, skal greiða Að lágmarki kr 83.176 fyrir hverja byrjaða klst. | |
| 5 | Fyrir leiðsögn um höfn skal greiða kr. 27.192 |
Leiga á gámasvæði/geymsla veiðarfæra/varnings/búnaðar/leiga á búnaði
- Geymsla á malarsvæði 227 kr. pr. m2 á mán.
- Geymsla á malbikuðu svæði 361 kr. pr. m2 á mán.
- Geymsla á veiðarfærum á hafnarköntum 6.074 kr. pr. sólarhring.
- Geymslugjald 20 feta gám 3.182 kr. Fyrir hvern byrjaðan mánuð.
- Geymslugjald 40 feta gám 6.363 kr. Fyrir hvern byrjaðan mánuð.
- Geymslugjald 20 feta frystigám pr. mán. 2.941 kr. + rafmagn.
- Geymslugjald 40 feta frystigám pr. mán. 4.705 kr. + rafmagn.
- Geymslugjald fyrir nætur og troll á geymslusvæði er það sama og pr. 40 feta gám á mán.
- Krókgámar lokaðir 1.174 kr. á rúmmetra á mánuði.
- Krókgámar opnir 582 kr. á rúmmetra á viku.
- Krókgámar opnir 2.050 kr. á rúmmetra á mánuði.
- Landgangaleiga 6.507 kr. á skipti.
- Tollverndarsvæði:
Öll svæði 172 kr. /m2 á mánuði.
Móttaka úrgangs
Almenn hafnarþjónusta: Seyðisfjarðarhöfn veitir almenna hafnarþjónustu eins og viðlegu fyrir skip og báta, afgreiðslu á ferskvatni, rafmagni, og sorphirðu, vigtun og hafnsögu.
Móttaka úrgangs
Skipstjóri eða eigandi skips sem óskar eftir að láta á land sorp, farmleifar, olíuleifar eða mengandi efni skal óska eftir aðstoð viðurkennds þjónustuaðila, sem hafnirnar hafa samþykkt að annist móttöku og förgun á ofangreindum úrgangi frá skipum á hafnarsvæðum hafnanna. Skipstjóri, eigandi skips eða þjónustuaðili skal undantekningalaust skila útfylltu eyðublaði til hafnanna um magn og tegund þess úrgangs sem skilað er á land.
Skip sem falla utan gr. 11 c í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004 skulu greiða þjónustuaðila kostnað vegna móttöku og förgun á úrgangi. Annist Hafnir Múlaþings móttöku og förgun á almennum úrgangi skal gjald greitt fyrir þjónustuna samkvæmt grein þessari fyrir hvern rúmmetra úrgangs. Annist Hafnir Múlaþings móttöku á spilliefnum eða sérstökum úrgangi sem hefur í för með sér kostnaðar umfram förgun á almennu sorpi greiðir viðkomandi aðili þann kostnað sem til fellur.
Vegna skipa sem falla undir grein 11 c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004 skulu skip greiða eftirfarandi:
a. Úrgangsgjald: Við komu skips til hafna skal skip greiða 1,07 kr. á brt. Gjald þetta er til þess að standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi.
Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 13.839 kr. og hámarksgjald /62.661 kr.
b. Úrgangsgjald: Gjald skv. staflið a. má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð.
Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 7.196 kr. og hámarksgjald 32.364 kr.
c. Úrgangsgjald:
Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á almanaksárinu greiða samkvæmt b. lið fyrir fimmtu komu og komur eftir það.
d. Úrgangsgjald:
Skip og bátar sem hafa varanlega viðveru í Höfnum Múlaþings skulu greiða fast mánaðargjald vegna eftirlits og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi.
Mánaðargjaldið skal vera 7.196 kr. á mánuði.
e. Förgunargjald:
Við komu til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. grein laga nr. 33 frá 2004 greiða förgunargjald óháð því hvort þau skili úrgangi í land. Förgunargjaldið skal standa undir förgun á úrgangi sem skilað er á land.
Farþegaskip yfir 60 metrar á lengd skulu greiða 2,02 kr. á brt. Gjaldið miðast við eftirfarandi sorpmagn:
Farþegaskip undir 30.000 brt: 5 m3
Farþegaskip frá 30.000 brt til 100.000 brt: 10m3
Farþegaskip yfir 100.000 brt: 15 m3
Önnur skip skulu greiða 2,82 kr. á brt. Gjaldið miðast við 5 m3 af sorpi.
Greiða skal samkvæmt h-lið fyrir sorp sem fer umfram ofangreinda viðmiðun. Skip og bátar sem eru
undir 60 metrar á lengd og hafa varanlega viðlegu í Höfnum Múlaþings skulu háðir sérstöku
samkomulagi sem m.a. taki á lögum og reglum um skil á sorpi.Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 48.530.
f. Förgunargjald:
Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið álagt förgunargjald skv. e-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans ásamt réttum upplýsingum um losað magn. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að kvittun móttökuaðila hafi borist Höfnum Múlaþings innan tveggja sólarhringa frá brottför skips.
g. Skv. 11 grein laga nr. 1200 frá 2014 getur Umhverfisstofnun veitt skipum í áætlunarsiglingum, sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni undanþágu frá afhendingu úrgangs. Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu frá Umhverfisstofnun um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum, skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis
h. Skip sem undanþegin eru gjaldskyldu skv. 1. tl. 2. mgr. 17. gr. og 11. grein c-lið laga nr. 33 frá 2004 hafnalaga skulu greiða fyrir móttöku hafnar og förgun á almennu sorpi. Lágmarksgjald hafnar fyrir móttöku á úrgangi er kr. 14.460 á hvern rúmmetra og lágmarksgjald einn rúmmetri. Annist höfnin móttöku á spilliefnum eða sérstökum úrgangi sem hefur í för með sér kostnaðar umfram förgun á almennu sorpi greiðir viðkomandi aðili þann kostnað sem til fellur.
i. Mengun:
Mengunarvaldur skal greiða allan kostnað við hreinsun vegna mengunaróhappa samkvæmt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. M.a. getur þar verið um að ræða kostnað vegna vinnu Brunavarna á Austurlandi, vegna vinnu starfsmanna hafna Múlaþings, og kostnaður vegna notkunar á búnaði og nauðsynlegum efnum til hreinsunar.
REKSTUR OG ÖRYGGISGJÖLD ISPS
Skoða nánarHafnsögugjald
Ekki er hafnsöguskylda í Höfnum Múlaþings en ef óskað er eftir slíkri þjónustu er greitt samkvæmt gjaldskrá.
- Fast gjald kr 6.879 pr. ferð.
- Stærðargjald kr. 10,20 á mælieiningu.
- Flutningur á hafnsögumanni kr. 54.383 pr. ferð.
- Ef óskað er eftir bát (Vinnubát) til aðstoðar við komu eða brottför út af hafnarsvæðinu, skal greiða að lágmarki kr. 83.176 fyrir hverja byrjaða klst.
Festargjöld
- Festargjöld fyrir hverja afgreiðslu 22.336 kr. og í yfirvinnu 38.368kr.
- Sé fleiri en einn maður notaður við afgreiðslu er gjald fyrir hvern aukamann 22.336kr. og í yfirvinnu 38.368 kr.
Vatnssala
- Vatn afgreitt frá bryggju, lágmarksgjald, 6.871 kr.
- Vatn til skipa, 408 kr./m3.
- Afgreiðsla utan dagvinnutíma, 9.187 kr. á. klst. til viðbótar gjaldskrá.
Leiga á móttökusal
- Leiga á móttökusal í Ferjuleiru 1. á Seyðisfirði fyrir 1-4 klst. 11.003 kr.
fyrir heilan dag 18.791 kr.
Tímagjald hafnarvarða
- Útseld vinna í dagvinnu kr. 7.021
- Útseld vinna í yfirvinnu kr. 10.752
Rafmagnssala
- Gámar 25,08 kr./kwst.
- Til skipa 25,08 kr./kwst.
- Tengigjald í dagvinnu 3.526 kr.
- Tengigjald í næturvinnu 9.612 kr.
- Mælaleiga 6.855 kr. kr. á. ári.
- Fari tenging fram utan dagvinnutíma greiðist tengigjald 9.381kr.
Móttaka skipa sem falla undir ISPS-kóða / Verndargjald
- Fyrir hverja komu skips sem fellur undir ákvæði laga um siglingavernd nr. 50/2004, ber að greiða eftirtalin gjöld til hafnarinnar:Fast gjald 24.032 kr.
auk þess 2,27 kr. fyrir hverja brúttólest skips.
Útseld vinna í dagvinnu vegna öryggisvörslu 8.233 kr. á. mann pr. klst.
Útseld vinna í næturvinnu vegna öryggisvörslu 12.361 kr. á mann pr. klst.
Verndar- og farþegagjald 224 kr. pr. farþega. - Hafnir Múlaþings taka við bókunum skemmtiferðaskipa fram í tímann. Við afbókun á komu skemmtiferðaskipa gildir eftirfarandi:
- Við afbókun innan við 18 mánuðum fyrir áætlaðan komutíma leggst á afbókunargjald sem er 5% af bryggjugjöldum.
- Við afbókun innan við 12 mánuðum fyrir áætlaðan komutíma leggst á afbókunargjald sem er 15% af bryggjugjöldum.
- Við afbókun innan við 6 mánuðum fyrir áætlaðan komutíma leggst á afbókunargjald sem er 30% af bryggjugjöldum.
- Við afbókun innan við 48 klst. fyrir áætlaðan komutíma leggst á afbókunargjald sem er 100% af bryggjugjöldum.
Undanþegin er afbókun innan við 48 klst. fyrir áætlaðan komutíma vegna slæmra veðurskilyrða. Afbókunargjald leggst ekki á breytingar á dagsetningum og/eða skipum svo framarlega sem unnt er að verða við slíkri beiðni.
Vigtargjald
- Almenn vigtun 227kr. á tonn
- Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun/löndun 1.363 kr.
- Vigtun flutningabíls 2.406 kr. pr. vigtun.
- Útseld vinna við vigtun í dagvinnu 7.021 kr. á klst.
- Útseld vinna við vigtun í yfirvinnu 10.752 kr. á klst.
- Útseld vinna við úrtaksvigtun 8.993 kr. á klst.
- Kranagjald, löndun með hafnarkrana 407 kr. pr. tonn.
- Skráningargjald afla 135,14 kr. pr. tonn
- Komi bátar utan eðlilegs vinnutíma greiðist að lágmarki tveggja tíma gjald vegna yfirvinnu. Vegna útkalls utan opnunartíma og um helgar eru greiddir að lágmarki fjórir tímar.
- Almennur vinnutími hafna er frá 08.00-17.00 virka daga. Lokað milli 12.00-13.00
Virðisaukaskattur
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Höfnum Múlaþings er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3.gr. laga nr.50/1998 um virðisaukaskatt.
Innheimta, greiðsla gjalda og gildistími
Skoða nánarUm innheimtu og greiðslu gjalda
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafna Múlaþings vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr.326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda. Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafna. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð. Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir. Vörugjald af vörum sem koma til hafnanna falla í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfnunum fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi. Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. Hafnalaga nr. 61/2003. Höfnum Múlaþings er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Höfnum Múlaþings er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3.gr. laga nr.50/1998 um virðisaukaskatt.
Gildistaka
Gjaldskrá þessi fyrir Hafnir Múlaþings er samþykkt af umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings þann 6. október 2025, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og staðfest af sveitarstjórn Múlaþings 12. desember 2025.
Gjaldskráin öðlast gildi þann 01. janúar 2026 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir hafnir Múlaþings nr. 727/2025
Gjaldskráin á þessari síðu er sett upp til þæginda. Ef misræmi er á milli gjalds á þessari síðu og skjalinu sem samþykkt var af sveitastjórn Múlaþings 12. desember 2025 gildir ávallt samþykkt sveitarstjórnar.