Bátahöfnin á Borgarfirði stendur við Hafnarhólma en Hafnarhólmi er einn vinsælasti ferðamannastaður Austurlands. Aðdráttaraflið er ein stærsta lundabyggð landsins í Hafnarhólma. Hægt er að komast mjög nálægt lundanum og fjöldi fuglategunda þrífast vel á Borgarfirði.

Frá höfninni eru gerðir út 12 bátar að jafnaði. Landanir eru um 700-800 á ári, 1000-1200 tonn. Sumarið 2003 fékk höfnin fyrst afhentan bláfánann. Það er viðurkenning sem veitt er fyrir góðan aðbúnað og snyrtimennsku við smáar hafnir. Þetta er önnur höfnin á Íslandi sem fékk þessa viðurkenningu.

Nýtt og glæsilegt þjónustuhús við höfnina á Borgarfirði eystra var opnað sumarið 2021. Arkitektar hússins eru Andersen & Sigurdsson Arkitektar.

Vefmyndavél á Hafnarhólma

Starfsemi

Almenn hafnarþjónusta:
Borgarfjarðarhöfn veitir almenna hafnarþjónustu eins og viðlegu fyrir skip og báta, afgreiðslu á ferskvatni, rafmagni, og sorphirðu, vigtun og hafnsögu. Starfsemi er samkvæmt hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og hafnarreglugerð nr. 275/2006 með breytingu nr. 499/2007.

Vigtun
Hún byggir á reglugerð nr. 224/2006, vigtun og skráning sjávarfangs, sem að hluta staðfestir að heildaraflinn skal vigtaður á hafnarvog í þeirri höfn sem löndun fer fram. Enn fremur skal löndun afla verða lokið innan tveggja stunda frá því löndun er lokið. Viðurkenndar vigtar í eigu hafnarinnar skal vera notuð við vigtun og framkvæmd af starfsmanni hafnarinnar sem hefur staðfest/opinbert leyfi til þess.

Símanúmer hafnarinnar er +354 4 700 722 .

Þeir sem nýta sér löndunaraðstöðu smábáta ber að færa bátinn frá löndunarkrana um leið og afli bátsins hefur verið vigtaður á hafnarvog. Óheimilt er að teppa löndunaraðstöð eftir að löndun sjávarafurða lýkur.

Hafnarreglur

 

Notkun hliðarskrúfa við komu og brottför er leyfð
Með leyfi frá hafnaryfirvöldum má mála skipsskrokk frá fleka
Gluggaþvottur og þrif með umhverfisvænni sápu er leyfður
Heimilt er að sjósetja björgunarbáta til æfinga
Aðrar sérstakar reglur:
Móttaka Skemmtiferðaskipa.
Á Borgarfirði er tekið á móti minni skemmtiferðaskipum við ankeri, og farþegar ferjaðir í land á Zodiac bátum. 500 farþega hámark er fyrir hvern dag.
Vinsamlega athugið að ekki er hægt að taka á móti skemmtiferðaskipum síðustu helgina í júlí ár hvert.

Skábraut

Aðeins fyrir smábáta

Staðsetning bryggju: 65°32´28 N 13°45´10 W  
Nota má skipabáta fyrir farþega og áhöfn.
Fjarlægð frá akkerisstöð til flotbryggju: 300 M 
Gerð bryggju: Rampur  
Hæð flotbryggju yfir sjávarmáli: 0 M
Dýpi á fjöru: 0 M 
Yfirborð flotbryggju: Steypa
Flotbryggjan er aðgengileg fyrir hjólastóla
Einungis er pláss fyrir einn bát í einu
Salerni við höfnina:  
Fjarlægð frá flotbryggju að miðbænum: 5 KM 
Availability of shore tenders: no 
Aðrar upplýsingar: Mikið fuglalíf er á svæðinu og því ber að sýna nærgætni 

Akkeri

Snúningspláss: 500 M
Dýpt á fjöru: 20 M

Aðrar upplýsingar: Mikið fuglalíf á svæðinu, komið inn á hálfum hraða og beint að bryggju.

Anchor lay  Anchor position

Hafnarþjónusta

Staðsetning: latitude 65°32´27N longitude 13°45´21 W

Hafnsöguþjónusta er ekki skylda.
Dráttarþjónusta er ekki í boði.
Einungis aðgengilegt fyrir Zodiac.

Staðartími: GMT
Opnunartími: 24 hours
Útsýnis sigling um Borgarfjörð: vegalengd 2 n.m

Aðstaða

Lókal vörur fáanlegar og til afhendingar til skemmtiferðaskipa: Fiskur

Loftslag

Best er að heimsækja frá maí til september.
Loftslag: Milt en breytilegt
Ríkjandi vindátt: NW
Meðalhiti: 10°C (50°F)
Lágmarks dýpt á lágflóði: 4,5 M
Sjávarfallamunur: 1,6 M
Straumur: 2 hnútar
Ölduhæð: 1,5-3 M
Ís staða: Laus við ís
Lofthæðartakmarkanir: Engar